Brúarlán
Skammtímalán sem brúar bilið þar til varanleg fjármögnun eða sala gengur í gegn.
Brúarlán hjá Spóa eru sérsniðnar skammtímafjármögnunarlausnir fyrir fyrirtæki, byggðar á kaupum á skuldabréfum útgefnum af lántaka.
Lánstími er allt að 12 mánuðir og öll brúarlán eru tryggð með fasteignaveðum eða öðrum traustum tryggingum.
Endanleg kjör ráðast af umfangi verkefnis, lánstíma og gæðum þeirra trygginga sem lagðar eru fram.
Hentar þegar
- Fasteign er í söluferli og fjármagn vantar þar til salan gengur í gegn.
- Beðið er eftir langtímafjármögnun frá banka eða lífeyrissjóði.
- Verkefni þarf að komast af stað áður en varanleg fjármögnun er frágengin.
- Kaup á eign þurfa að klárast hratt.
Svona gengur þetta fyrir sig
- 1Lýsing á verkefni og tryggingum
Þú sendir okkur stutta lýsingu á verkefninu, fjárþörf, tímaramma og þeim tryggingum sem eru til staðar.
- 2Mat og tilboð
Við metum verkefnið og tryggingarnar og gerum tilboð um fjárhæð, lánstíma og kjör.
- 3Skjöl og útborgun
Skuldabréf er gefið út, veð þinglýst og lánið greitt út.
Ræðum verkefnið þitt.
Stutt lýsing á verkefninu, fjárþörf og tryggingum nægir til að byrja. Við svörum fljótt.
