Spói fyrirtækjafjármögnun

Kröfufjármögnun

Fáðu greitt strax fyrir útgefna reikninga í stað þess að bíða eftir greiðslu viðskiptavina.

Með kröfufjármögnun hjá Spóa getur fyrirtækið þitt fengið allt að 80% af fjárhæð útgefinna reikninga greidda út strax og þannig bætt lausafjárstöðu í rekstri.

Þjónustan hentar fyrirtækjum sem selja öðrum fyrirtækjum eða opinberum aðilum með greiðslufresti og vilja losna við biðina eftir greiðslu.

Þóknun ræðst af fjárhæð, greiðslufresti og greiðanda reikningsins.

Hentar þegar

  • Þú veitir viðskiptavinum 30–90 daga greiðslufrest en þarft launin og aðföngin greidd núna.
  • Reksturinn er að vaxa og vöxturinn bindur fé í útistandandi kröfum.
  • Stór verkefni eða árstíðasveiflur skapa tímabundna lausafjárþörf.

Svona gengur þetta fyrir sig

  1. 1
    Þú gefur út reikning

    Þú gefur út reikning og sendir hann til Spóa.

  2. 2
    Samþykki greiðanda

    Spói fær samþykki frá greiðanda á reikningnum.

  3. 3
    Útborgun

    Við samþykki greiðir Spói út allt að 80% af fjárhæð reikningsins.

  4. 4
    Greiðsla til Spóa

    Reikningurinn er síðan greiddur beint til Spóa af greiðanda.

  5. 5
    Uppgjör

    Að lokinni innheimtu færð þú uppgjör á eftirstöðvum, að frádreginni þóknun.

Ræðum verkefnið þitt.

Stutt lýsing á verkefninu, fjárþörf og tryggingum nægir til að byrja. Við svörum fljótt.