Sérhæfð fjármögnun
Lausnir sniðnar að flóknari verkefnum þar sem hefðbundin lán duga ekki.
Hjá Spóa bjóðum við sérhæfða fjármögnun fyrir fyrirtæki sem þurfa lausnir utan hefðbundinna ramma brúarlána og kröfufjármögnunar.
Við nálgumst hvert verkefni af sveigjanleika og mótum fjármögnun út frá þörfum, tímaramma og tryggingum hverju sinni.
Útfærsla og kjör ráðast af eðli verkefnisins og undirliggjandi tryggingum.
Hentar þegar
- Verkefnið er með óvenjulega uppbyggingu, marga aðila eða tryggingar sem bankar taka ekki.
- Fjármögnunin þarf að fylgja áföngum í verkefninu frekar en einum útborgunardegi.
- Blanda þarf saman láni, kröfukaupum og öðrum lausnum.
Svona gengur þetta fyrir sig
- 1Fyrsta samtal
Við förum yfir verkefnið, aðila að því og hvaða tryggingar eru í boði.
- 2Tillaga að útfærslu
Við leggjum fram tillögu að uppbyggingu, tímaramma og kjörum sem passa verkefninu.
- 3Frágangur
Samningar og tryggingar frágengnar og fjármögnunin greidd út samkvæmt umsömdum áföngum.
Ræðum verkefnið þitt.
Stutt lýsing á verkefninu, fjárþörf og tryggingum nægir til að byrja. Við svörum fljótt.
