Vafrakökur og persónuvernd
Hér er útskýrt hvernig Spói notar vafrakökur á spoi.is.
Hvað eru vafrakökur?
Vafrakökur eru litlar textaskrár sem vefur vistar í vafranum þínum. Þær gera vefnum kleift að þekkja vafrann aftur við næstu heimsókn. Sumar koma frá vefnum sjálfum, aðrar frá þriðja aðila sem vefurinn vinnur með.
Hvaða vafrakökur notar Spói?
Spói notar eingöngu vafrakökur frá Meta, eiganda Facebook og Instagram. Þær eru notaðar til að greina notkun vefsins og til að birta auglýsingar Spóa á Facebook og Instagram hjá þeim sem hafa heimsótt vefinn.
Kökurnar eru aðeins virkjaðar ef þú samþykkir það í borðanum sem birtist við fyrstu heimsókn. Ef þú hafnar er ekkert sent til Meta og vefurinn virkar að öllu leyti eins.
Ef þú samþykkir fær Meta upplýsingar um hvaða síður á spoi.is voru skoðaðar og hvenær, ásamt IP-tölu, upplýsingum um vafra og tæki og auðkenni úr kökunum. Viðtakandi er Meta Platforms Ireland Ltd. og upplýsingarnar kunna að vera fluttar til Bandaríkjanna.
Hvernig breyti ég valinu?
Þú getur breytt vali þínu hvenær sem er með því að smella á „Vafrakökur“ neðst á síðunni. Einnig er hægt að loka á eða eyða vafrakökum í stillingum vafrans.
Réttindi þín
Þú getur óskað eftir upplýsingum um þær persónuupplýsingar sem við höfum um þig, fengið þær leiðréttar eða þeim eytt og dregið samþykki þitt til baka. Sendu okkur línu á spoi@spoi.is. Teljir þú að vinnslan samrýmist ekki lögum getur þú leitað til Persónuverndar, personuvernd.is.
Ábyrgðaraðili er Spói fjármögnun ehf., kt. 700620-0500, Bakkastöðum 61, 112 Reykjavík.
Síðast uppfært 12. nóvember 2026.
